Alfa í netheimum

Wednesday, October 18, 2006

Gestaboð Jóhönnu



Við fórum allar kellurnar í húsmæðraorlof upp í sveit. Jóhanna Dikk sá um matargerðina og brilleraði í eldhúsinu. Mikið var gott að borða og spjalla og fara í pottinn. Ég var bara spök og fór ekkert í pottinn, ekkert að ganga og hvíldi mig gasalega vel. Var bara eins og gömul kella - en nú er heilsan öll á uppleið og ég ætla að verða aftur ung og spræk. Þetta er víst bara spurning um hugarfar.

Wednesday, October 04, 2006

Nýkomnar frá Köben



Ég er nýkomin frá Köben og fór með Vidísi og Maríönnu Magúsdóttur vinkonu hennar. Þetta var fín helgarferð. Stelpurnar krossuðu upp og niður Strikið og keyptu sér ný föt og alls konar glingur. En Strikið nægði þeim ekki alveg heldur fóru þær líka í einhverja Fiskitorfu (Fisketorven) sem var stútfull af búðum, svona Smáralind. Ég ætlaði þangað með þeim - en meikaði ekki lengra en inn fyrir þröskuldinn og pantaði leigubíl niður í miðbæ! Bara flökraði við öllum búðarholunum - afsakið. Eitthvað var nú miðbærinn og gömlu húsin huggulegri.

Ég var hins vegar mestallan tíman ein með sjálfri mér á kaffihúsum, söfnum og einhverjum búðum eða bara á göngu um miðborgina. Fílaði stemninguna í Nýhöfninni, hafði nóg að lesa og bara andaði að mér danska kúltúrnum. Fór t.d. á Bertels Thorvaldsens museum og það var mjög áhrifamikið. Maðurinn gerði víst um 500 skúlptúra á æfi sinni og alveg magnað að sjá verkin hans. Danirnir hafa byggt stórt safn utanum skúlptúrana og það var mjög flott. Ég vildi endilega að stelpurnar færu þangað - en það var vonlaust að fá þær þarna inn. Gasalega er ég annars ánægð með Vigdísi - hún er mjög velheppnuð stelpa og með opinn huga þó hún hefði ekki áhuga á skúlptúrunum hans Thorvaldsens.

Tuesday, October 03, 2006

Hereford og Hard Rock


Þær stöllurnar voru semsagt aðallega á Strikinu og fóru reyndar á eitt safn, Erotisk museum (svona typpasafn....) og voru gasalega hrifnar. Ég fékk mér bara kaffi á meðan og las Flugdrekahlauparann. Ég var orðin sársvöng á öllum lýsingunum í bókinni á ilmandi naan brauði, safaríku kebab kjöti og hrísgrjónum. Hefði alveg verið til í að prufa afganskan eða indverskan mat í ferðinni - en ekki komst það fyrir í dagskránni og ekki er ég heldur viss um að stúlkurnar hefðu verið til í það. Nei, við skyldum sko borða á HardRock eða Hereford steikhouse og almennilegar amerískar steikur eða hamborgara - takk fyrir.

Við skoðuðum sívalaturninn á leiðinni í Christaníu. Stelpurnar gengu upp í turninn (um 400 þrep) en ég bara fékk mér danska rjómapönsu og kaffi sem var mjög notalegt. Síðan héldum við ferðinni áfram til að skoða Christaníu og kíktum á stemninguna þar. Nóg var af dótaríi til sölu, afgreiðslumennirnir reykjandi eitthvað annað en venjulegar sígarettur og eitthvað var ilmurinn í loftinu öðruvísi en maður er vanur! Stúlkurnar skoðuðu þarna skartgripi og hasspípur og fleira sem maður sér ekki annars staðar.

Vigdís og Maríanna á myndinni hér að ofan á safninu vinsæla með erótískt listaverk á milli sín sem vakti mikla kátínu.