Alfa í netheimum

Thursday, December 28, 2006

Nýja brumið í Hlíðarhjalla


Héldum jólin í Hlíðarhjallanum og buðum pabba að borða með okkur. Almennt voru heimilismeðlimir þreyttir eftir jólastapp í Bónus og Pizza hut. Það er gríðarleg vinna að halda svona hátíð og eins gott að vera í góðu formi til þess. En ekki er öll nótt úti enn, um áramótin ætlar húsmóðirin að sitja á rassinum og láta þjóna sér. Heimilismeðlimum ætti ekkert að vera að vanbúnaði í nýja og fína eldhúsinu. Myndin er bara fake, allir í þykjustunni voða glaðir!

Yngsti heimilismeðlimurinn var samt mjög ánægður, hann fékk fínar jólagjafir og var bara hamingjusamur.